6. apr. 2020

,,Listaverk dagsins" hjá Grósku

Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ,  heldur myndlistarsýninguna ,,Listaverk dagsins" á fésbókarsíðu og instagramsíðu félagsins. 

  • Gróska - félag myndlistarmanna í Garðabæ
    Gróska - félag myndlistarmanna í Garðabæ

Hvað sem samkomubanni líður þá dafnar listin hjá Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ.  Gróska fagnaði fyrir skemmstu 10 ára afmæli sínu en hefur síðan eins og aðrir þurft að fresta allri dagskrá fram á sumar og haust. Til að bæta fyrir þetta hefur Gróska hins vegar tekið upp á þeirri nýbreytni að sýna list félagsmanna á netinu og efnt til sýningarraðarinnar ,,Listaverk dagsins". Á hverjum degi fram til 1. maí amk birtist nú eitt verk eftir félagsmenn á síðum Grósku á facebook og Instagram. Upplýsingar um höfund, stærð verka og miðil fylgir með hverju verki og stundum birtist líka hugleiðing listamannsins sjálfs um verkið.

Gróska á facebook
Gróska á instagram