21. nóv. 2024

Lokað fyrir kalda vatnið í Bæjargili á föstudaginn

Kaldavatnslaust verður í Bæjargili 92-116 á föstudaginn á milli klukkan 10:00 og 12:00.

Vegna vinnu Vatnsveitu verður lokað fyrir kalda vatnið í Bæjargili á föstudaginn, 22. nóvember. Lokunin stendur yfir frá klukkan 10:00 til 12:00 og nær yfir húsnúmer 92 til 116. Sjá svæði þar sem verður kaldavatnslaust á meðfylgjandi mynd.

Íbúar eru minntir á að gæta þess að lokað sé fyrir kaldavatnskrana þegar farið er að heiman.