2. jún. 2021

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, miðvikudaginn 26. maí. Átta nemendur úr 7. bekk í Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla fengu að spreyta sig á upplestri á fyrirfram ákveðnum textum úr skáldsögu og ljóðum.

  • Sigurvegarar í Stóru upplestarkeppninni.
    Sigurvegarar í Stóru upplestarkeppninni.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, miðvikudaginn 26. maí. Átta nemendur úr 7. bekk í Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla fengu að spreyta sig á upplestri á fyrirfram ákveðnum textum úr skáldsögu og ljóðum. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og lýkur að vori með því að valdir eru þrír bestu upplesarar í hverju byggðarlagi, eða í umdæmi hverrar skólaskrifstofu.

Í ár voru skáld keppninnar Bergrún Íris Sævarsdóttir og Kristján frá Djúpalæk. Einnig fengu nemendur að lesa ljóð að eigin vali. Á meðan á hátíðinni stóð var einnig boðið upp skemmtiatriði frá skólunum.

Í lok hátíðar afhenti Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, öllum lesurunum bók frá Félagi íslenskra bókaútgefenda sem viðurkenningu fyrir þátttökuna. Varamenn sem tóku fullan þátt í undirbúningnum voru einnig kallaðir upp á svið og fengu bókaverðlaun. 

Dómnefnd sem var að störfum fékk það erfiða val að velja þrjá lesara úr hópnum og veita þeim viðurkenningar og verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti. Í fyrsta sæti var Helga María Guðjónsdóttir úr Flataskóla, Lovísa Anna Jóhannsdóttir í Hofsstaðaskóla varð í öðru sæti og í þriðja sæti var Birnir Eiðar Eiríksson úr Sjálandsskóla.