8. mar. 2020

Lokanir til að vernda viðkvæma hópa

Neyðarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að loka tímabundið starfsstöðvum Garðabæjar sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma með hliðsjón af neyðarstigi almannavarna. 

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Í ljósi neyðarstigs almannavarna sem var sett á föstudaginn 6. mars sl. hefur neyðarstjórn Garðabæjar komið saman og er að störfum. Verið er að tryggja órofna starfsemi sveitarfélagsins og gera ráðstafanir komi til skertrar mönnunar hjá sveitarfélaginu. Þjónusta sveitarfélagsins sem og stjórnskipulag mun að mestu leyti haldast óbreytt. Staðan er metin daglega og hugsanlega verða einhverjar breytingar þar á.

Neyðarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að loka tímabundið starfsstöðvum Garðabæjar sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma með hliðsjón af neyðarstigi almannavarna.

Eftirfarandi starfsstöðvum Garðabæjar verður lokað tímabundið frá og með 9. mars 2020.
Félagsstarf aldraðra
• Jónshús, félagsmiðstöð, Strikinu 6
• Smiðjan, Kirkjuhvoli
• Litlakot, Álftanesi
• Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á vegum Garðabæjar, s.s. í íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið.

Skammtímavistun fyrir fötluð börn
• Skammtímavistun í Móaflöt

Upplýst verður um lokanir og þegar starfssemi hefst að nýju til allra hlutaðeigandi.
Stuðnings- og öldrunarþjónusta Garðabæjar sem er staðsett í húsnæði Ísafoldar verður áfram opin. Önnur þjónusta Garðabæjar er órofin, eins og heimaþjónusta og stuðningsþjónusta.

Viðkvæmir hópar

Sóttvarnalæknir beinir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að huga vel að hreinlætisaðgerðum og forðast mannamót að óþörfu.
Sjá frétt hér á vef almannavarna.

Það er aldrei of oft talað um fyrirbyggjandi aðgerðir sem eru; hreinlæti, þrif, tryggja gott aðgengi að handspritti, handsápu og pappírsþurrkum. Réttur handþvottur er talinn skipta miklu máli til að koma í veg fyrir smit og á það við um venjulega flensu líka.
Upplýsingar um COVID-19 faraldurinn á vef Landlæknis.