Malbikun á Eyvindarstaðavegi
Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur.
Á morgun, fimmtudaginn 15. maí, mun Loftorka vinna við malbikun á Eyvindastaðavegi á Álftanesi, frá Norðurnesvegi og inn í botn hjá Álftanesskóla, ef veður leyfir.
Byrjað verður um klukkan 9:00 og unnið fram eftir degi.
Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleiðir verða merktar eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani.