21. okt. 2020

Meistaraflokkar og afrekshópar geta hafið æfingar

Meistaraflokkar og afreks hópar sem og afreksfólk í einstaklingsgreinum geta hafið æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna.
Þetta er afmarkað með þeim skilyrðum sem reglugerð heilbrigðisráðherra frá 19. október segir til um vegna íþróttastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. 

  • Íþróttamiðstöðin Ásgarður
    Íþróttamiðstöðin Ásgarður

Fréttatilkynning frá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins 21. október 2020:

Ákveðið var á fundi í dag með fulltrúum allra íþrótta- og tómstundamálasviða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og starfsfólki almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, að meistaraflokkar og afreks hópar sem og afreksfólk í einstaklingsgreinum geti hafið æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna.

Þetta er afmarkað með þeim skilyrðum sem reglugerð heilbrigðisráðherra frá 19. október segir til um vegna íþróttastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að íþróttastarfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér óheimil. Íþróttamenn sem með þessu fá leyfi til æfinga gæti því vel að fjarlægðarmörkum sem eru 2 metrar og gæti einnig að almennum persónubundnum sóttvörnum.

Hvert sveitarfélag ákveður hvenær starf getur hafist þar sem undirbúa þarf opnun í samstarfi við starfsfólk mannvirkjanna og í samræmi við strangar sóttvarnareglur ÍSÍ, sérsambandanna, reglugerðir heilbrigðisráðherra og fyrirmæli sóttvarnalæknis.

Íþróttastarf barna fædd 2005 og síðar hefst ekki að svo stöddu og verður það metið í næstu viku í samstarfi við ÍSÍ og sóttvarnayfirvöld. Nauðsynlegt er að vernda skólastarfið og forðast blöndum barna úr ólíkum hópum sem eru til staðar í skólunum til að fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví ef upp koma smit. Ákveðin áhætta er fólgin í því ef þessi hópar blandast í íþróttastarfi.

Æfingar í íþróttamannvirkjum Garðabæjar

Æfingar meistaraflokka Stjörnunnar og UMFÁ hefjast þegar félögin hafa útfært framkvæmd æfinga út frá skilyrðum sem sett eru í reglugerð um sóttvarnir.

Aðrar æfingar geta ekki hafist strax þar sem ekki er hægt að fullnægja öllum skilyrðum í húsunum. Æfingar barna f.2005 og síðar hefjast ekki fyrr en 3. nóv skv reglugerð.

Endurmat á þessu verður gerð á þriðjudag í næstu viku.