25. okt. 2021

Menntadagur fyrir leik- og grunnskóla

Föstudaginn 22. október sl. var haldinn sérstakur menntadagur fyrir kennara og starfsfólk í leik- og grunnskólum Garðabæjar.  

  • Menntadagur í Garðabæ
    Menntadagur í Garðabæ

Föstudaginn 22. október sl. var haldinn sérstakur menntadagur fyrir kennara og starfsfólk í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Menntadagurinn fór fram eftir hádegi á starfsdegi skólanna og þar gafst starfsfólki kostur á að velja úr og hlýða á fjölbreytt erindi í málstofum.

Dagskráin hófst í íþróttamiðstöðinni Ásgarði þar sem þær Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar grunnskóla, og Kristjana Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar, héldu stutt ávarp og þökkuðu fyrir þá útsjónarsemi og þrautseigju sem starfsfólk leik- og grunnskóla hefur sýnt á undanförnum misserum. Um leið opnuðu þær með formlegum hætti undirsíður á vef Garðabæjar þar sem hægt er að skoða þróunarsjóðsverkefni leik- og grunnskóla í Garðabæ með aðgengilegri hætti en áður. Jóhann Alfreð, skemmtikraftur og grínisti, sá um að hrista saman mannskapnum með skemmtilegu uppistandi áður en haldið var í málstofurnar sem fóru fram í Garðaskóla og Flataskóla. Í málstofunum voru mörg áhugaverð erindi þar sem fjallað var um verkefni sem hafa hlotið styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár.

Menntadagur í Garðabæ

Menntadagur í Garðabæ

Þróunarsjóðsverkefni á vef Garðabæjar

Á menntadeginum voru síður þróunarsjóðsverkefna leik- og grunnskóla í Garðabæ á vef Garðabæjar, gardabaer.is , opnaðar með formlegum hætti og þar er að hægt að sjá upplýsingar um verkefnin sem hafa hlotið styrk með aðgengilegri hætti en áður. Lokaskýrslur þróunarverkefna eru birtar á nýjum undirsíðum þar sem verkefnin eru flokkuð eftir skólastigum: leikskólastig, yngsta stig grunnskóla, miðstig grunnskóla og unglingastig grunnskóla. Á hverju skólastigi er textaleit úr stuttri lýsingu um verkefnin, þar er hægt að setja inn heiti skóla o.fl. og einnig eru þar fellivalsgluggar þar sem hægt er að velja áhersluþætti og námsgreinar sem tengjast verkefnunum.
Áfram verður unnið að því að þróa þessa birtingu þróunarsjóðsverkefna á vef Garðabæjar og fleiri verkefni sett inn á síðurnar.

Framþróun og öflugt innra starf leik- og grunnskóla

Markmið þróunarsjóða leik- og grunnskóla í Garðabæ er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi skóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar og aðrir fagaðilar sem starfa við grunnskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu sem og fræðslu- og menningarsvið bæjarins í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í þróunarsjóðina. Úthlutun úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla er einu sinni á ári og fjölbreytt verkefni hafa fengið styrki úr sjóðunum á liðnum árum eða allt frá árinu 2017 þegar sjóðirnir voru stofnaðir.

 Menntadagur í Garðabæ