29. jan. 2019

Mikil ánægja með þjónustu Garðabæjar

Garðabær lendir í 1. sæti í sex af þrettán almennum viðhorfsspurningum í árlegri þjónustukönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2018. 

  • Þjónusta við barnafjölskyldur
    Þjónusta við barnafjölskyldur

Garðabær lendir í 1. sæti í sex af þrettán almennum viðhorfsspurningum í árlegri þjónustukönnun Gallup sem var framkvæmd í lok árs 2018. Sú spurning sem hækkar mest í skori frá því síðast er um ánægju íbúa með þjónustu við barnafjölskyldur en þar er skorið 4,0 í ár (á skalanum 1-5) og Garðabær lendir þar í fyrsta sæti í samanburði við önnur sveitarfélög. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 19 stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Aðrar viðhorfsspurningar þar sem Garðabær lendir í fyrsta sæti eru þegar spurt er um ánægju íbúa með þjónustu leikskóla, þjónustu grunnskóla, þjónustu á heildina litið, skipulagsmál almennt í sveitarfélaginu og þar sem spurt er um hversu vel eða illa starfsfólk bæjarins hefur leyst úr erindum íbúa. Garðabær er í flestum spurningum í efstu sætum og meðaltal úr öllum spurningum er hærra í öllum tilvikum nema í einni spurningu í samanburði við önnur sveitarfélög.
Í könnuninni er auk þess spurt um viðhorf íbúa til gæði umhverfis, aðstöðu til íþróttaiðkunar, sorphirðu, menningarmál, þjónustu við eldri borgara, þjónustu við fatlað fólk og um sveitarfélagið sem stað til að búa á.

Á heildina litið eru niðurstöður úr þjónustukönnunni mjög góðar og ánægjulegt að margar spurningar hækka enn í skori á milli ára. Könnunin var lögð fram til kynningar í bæjarráði Garðabæjar í morgun þriðjudaginn 29. janúar. Áfram verður rýnt í niðurstöður og einstaka þætti könnunarinnar hjá nefndum og sviðum bæjarins og skoðað með hvaða hætti Garðabær geti haldið áfram að bæta þjónustuna enn frekar.

Niðurstöður fyrir Garðabæ úr þjónustukönnuninni 2018

Niðurstöður til samanburðar úr eldri könnunum