7. jan. 2021

Mikil fjölgun íbúa í Garðabæ

Íbúum í Garðabæ fjölgaði um 768 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. janúar sl. samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Um er að ræða næst mestu fjölgun á landsvísu en í Reykjavík fjölgaði íbúum um 2.133 á sama tímabili. Íbúafjöldi í Garðabæ er núna 17.692 (1. janúar 2021).

  • Fjölgun íbúa í Garðabæ
    Íbúum á höfuðborgarsvæðinu í heild fjölgaði um 1,5% eða 3.495.

Íbúum í Garðabæ fjölgaði um 768 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. janúar sl. samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Um er að ræða næst mestu fjölgun á landsvísu en í Reykjavík fjölgaði íbúum um 2.133 á sama tímabili. Íbúafjöldi í Garðabæ er núna 17.692 (1. janúar 2021).

Hlutfallslega mest fjölgun í Garðabæ á höfuðborgarsvæðinu

Þegar tölur eru skoðaðar fyrir höfuðborgarsvæðið er hlutfallslega mest fjölgun í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eða um 4,5 % fjölgun. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu í heild fjölgaði um 1,5 % eða 3.495 íbúa.

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 14,0% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 12 íbúa eða úr 86 í 98 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi um 9,9% og Svalbarðsstrandarhreppur um 8,5%. Þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili.

Í frétt á vef Þjóðskrár er hægt að sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.