21. des. 2011

Íþróttamaður Garðabæjar 2011

Þrettán íþróttamenn eru tilnefndir til íþróttamanns Garðabæjar 2011, sjö karlar og sex konur. Íbúar Garðabæjar geta tekið þátt í valinu með því að fylla út "kjörseðil" á vef Garðabæjar.
  • Séð yfir Garðabæ

Þrettán íþróttamenn eru tilnefndir til íþróttamanns Garðabæjar 2011, sjö karlar og sex konur.

Eins og á síðasta ári verður valinn einn karlmaður og ein kona sem hljóta sæmdarheitin íþróttakarl og íþróttakona Garðabæjar 2011.

Íbúar Garðabæjar geta tekið þátt í valinu með því að fylla út "kjörseðil" á vef Garðabæjar.

Kosningin stendur frá fimmtudeginum 22. desember til föstudagsins 30. desember.

ÍTG mun styðjast við álit bæjarbúa við kjörið en því verður lýst við hátíðlega athöfn í sal FG þann 8. janúar. 

Upplýsingar um þá sem eru tilnefndir og afrek þeirra