Hæfileikaríkir nemar í Hofsstaðaskóla
Fjölgreindaleikar voru haldnir í Hofsstaðaskóla í vikunni. Hefðbundið skólastarf var leyst upp og nemendur skólans unnu saman að fjölbreyttum verkefnum.
Tókust á við fjölbreytt verkefni
Á fjölgreindarleikum er nemendum er skipt upp í 34 hópa. Í hverjum hóp voru 13 nemendur og voru elstu nemendurnir fyrirliðar. Hver hópur þurfti að takast á við 34 mjög fjölbreytt verkefni þar sem reynir á ólíka færni og greind. Hóparnir fengu síðan stig eftir hverja þraut, bæði fyrir frammistöðu og framkomu sinna liðsmanna.
Skrautlegir starfsmenn
Starfsmenn skólans settu skemmtilegan svip á leikana en þeir mættu flestir í skrautlegum búningum og skemmtu sér ekki síður en börnin. Leikarnir þóttu takast sérstaklega vel og leiða í ljós ýmsa dulda hæfileika sem ekki reynir á dags daglega.
Á leikunum er fjölgreindakenning Howard Gardners höfð að leiðarljósi. Markmið leikanna er m.a. að allir fái að njóta sín með einhverjum hætti og efla kynni við aðra í skólanum í leiðinni.
Starfsmenn skólans voru óvenju skrautlegir þá daga sem fjölgreindarleikarnir stóðu yfir.