6. okt. 2011

Fyrirlestur um textílhönnun

Finnski hönnuðurinn Pia Holm flytur fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands laugardaginn 8. október, þar sem hún fjallar um finnska textílhönnun og eigin verk
  • Séð yfir Garðabæ

Finnski hönnuðurinn Pia Holm flytur fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands laugardaginn 8. október kl 14. 

Pía er myndskreytir og textílhönnuður og nefnir hún fyrirlesturinn NATURALLY HAPPY PATTERNS eða Náttúrulega hamingjusöm mynstur.
Pía mun fjalla um finnska textílhönnun og eigin verk. Hún hefur um árabil unnið fyrir stór norræn fyrirtæki, meðal annars fyrir hið heimsþekkta fyrirtæki MARIMEKKO og einnig undir eigin merki happydesign.fi.

Fyrirlesturinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.

Verk Piu verða til sýnis í safninu í október 2011.

Auglýsing um fyrirlesturinn

Mynd eftir Piu Holm