16. sep. 2011

Íþrótta- og æskulýðsstarf

Upplýsingar um íþrótta- og æskulýðsstarf í Garðabæ eru nú aðgengilegar á vef Garðabæjar
  • Séð yfir Garðabæ

Á vef Garðabæjar hafa verið teknar saman upplýsingar um íþrótta- og æskulýðsstarf í Garðabæ. Þar eru helstu upplýsingar um þá aðila sem standa fyrir slíku starfi og tenglar á vefi þeirra. Með því er ætlunin að auðvelda börnum og ungmennum í Garðabæ og fjölskyldum þeirra að finna upplýsingar um starf sem hentar hverjum og einum.

 

Upplýsingar um æskulýðs- og íþróttastarf í Garðabæ.

 

Hægt er að senda upplýsingar um íþrótta- og æskulýðsstarf í Garðabæ á netfangið: gardabaer@gardabaer.is