28. jún. 2011

Dansandi leikskólabörn

Þriðjudaginn 28. júní hélt Skapandi sumarhópur á vegum Garðabæjar litla leikskólahátíð fyrir elstu börnin á leikskólum í Garðabæ. Undanfarnar tvær vikur hafa nokkrar stelpur úr Skapandi sumarhópunum farið á leikskóla í bænum þar sem þau hafa kennt elstu börnunum einn sumardans.
  • Séð yfir Garðabæ

Þriðjudaginn 28. júní hélt Skapandi sumarhópur á vegum Garðabæjar litla leikskólahátíð fyrir elstu börnin á leikskólum í Garðabæ. Hátíðin var haldin innandyra að Garðatorgi 1 þar sem Skapandi sumarhópar hafa bækistöðvar í sumar.  

 

Undanfarnar tvær vikur hafa nokkrar stelpur úr Skapandi sumarhópunum farið á leikskóla í bænum þar sem þau hafa kennt elstu börnunum einn sumardans.  Á leikskólahátíðinni á Garðatorgi var dansinn stiginn í sameiningu. Að því loknu fengu börnin að búa til listaverk, fara í leiki o.fl. Mikið fjör var á torginu og allir skemmtu sér vel.

 

Skapandi sumarhóparnir eru með mjög skemmtilega face-book síðu þar sem sagt er frá starfinu þeirra og þar má sjá fleiri myndir frá leikskólahátíðinni í dag.