Sumarfólk komið til starfa
Rúmlega 400 ungmenni hófu störf hjá Garðabæ í dag 3. júní en þau munu vinna við ólík störf bæði úti og inni nú í sumar.
Rúmlega 400 ungmenni hófu störf hjá Garðabæ í dag 3. júní en þau munu vinna við ólík störf bæði úti og inni nú í sumar. Flestir, eða ríflega 200, taka þátt í svokölluðu skógræktarátaki en þeir starfa á útivistar- og náttúrusvæðum bæjarins við fjölbreytt störf s.s. ruslatínslu, lagningu nýrra útivistarstíga og lagfæringu eldri stíga á útivistarsvæðum ofan byggðar, einnig verður farið í átak í heftingu útbreiðslu lúpínu og kerfils.
Aðrir starfa hjá félagasamtökum í bænum, í stofnunum bæjarins, í garðyrkjudeildinni og víðar.
Bæjarstjórn Garðabæjar ákvað að veita öllum sem sóttu um sumarstarf vinnu í 8 vikur. Flestir hófu störf í dag en aðrir koma til starfa á næstu dögum og vikum.
Sumarfólkið er allt boðið velkomið til starfa.