23. maí 2011

Jazzhátíðin vel sótt

Fjölmargir lögðu leið sína á tónleika á Jazzhátíð Garðabæjar dagana 19.-22. maí sl. Hátíðin sem nú var haldin í sjötta sinn bauð upp á fjölbreytta dagskrá með tónleikum í hátíðarsal FG, Jónshúsi og safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Jazzhátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar með liðsinni Íslandsbanka
  • Séð yfir Garðabæ

Fjölmargir lögðu leið sína á tónleika á Jazzhátíð Garðabæjar dagana 19.-22. maí sl. Hátíðin sem nú var haldin í sjötta sinn bauð upp á fjölbreytta dagskrá með tónleikum í hátíðarsal FG, Jónshúsi og safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.  Jazzhátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar með liðsinni Íslandsbanka í Garðabæ sem er aðalstuðningsaðili hátíðarinnar.  Listrænn stjórnandi frá upphafi er Sigurður Flosason sem enn á ný setti saman áhugaverða dagskrá við allra hæfi.   Á hátíðinni komu fram reyndir sem óreyndari listamenn sem margir hverjir eiga rætur sínar að rekja til Garðabæjar.  Einnig var boðið upp á þekkta erlenda listamenn þá Kazumi Watanabe á gítar á opnunarkvöldinu og Daninn Nikolaj Bentzen lék á píanó fyrir fullu húsi á laugardagskvöldinu. 

 

Sjá myndasyrpu frá hátíðinni hér á vef Garðabæjar.