8. mar. 2011

Hádegisleiðsögn í Hönnunarsafninu

Hádegisleiðsögn verður í Hönnunarsafni Íslands fimmtudaginn 10. mars kl. 12:15 um sýningu safnsins á þeim tillögum sem bárust í hönnunarsamkeppni um húsgögn í Hörpu.
  • Séð yfir Garðabæ

Hádegisleiðsögn verður  í Hönnunarsafni Íslands fimmtudaginn 10. mars kl. 12:15 um sýningu safnsins á þeim tillögum sem bárust í hönnunarsamkeppni um húsgögn í Hörpu.

Höfundar verðlauna- og viðurkenningatillagna segja frá tillögum sínum og verður rætt um hlutverk og mikilvægi slíkra samkeppna fyrir íslenska hönnuði. Alls bárust 23 tillögur í samkeppnina sem var opin íslenskum hönnuðum.

Höfundar að verðlaunatillögunni eru þær Helga Sigurbjarnadóttir og Kristín Aldan Guðmundsdóttir innanhússarkitektar. Tveir tillögur fengu sérstaka viðurkenningu dómnefndar. Annars vegar tillaga þeirra Dóru Hansen, Heiðu Elínar Jóhannsdóttur og Þóru Birnu Björnsdóttur innanhússarkitekta, hins vegar tillaga þeirra Guðrúnar Margrétar Ólafsdóttur og Oddgeirs Þórðarsonar húsgagnahönnuða í GoForm teiknistofu.

 

Allt áhugafólk og fagfólk um íslenska hönnun er hvatt til að mæta.


Sýningunni lýkur á sunnudag, 13. mars.