5. jan. 2011

Jólatrén hirt í Garðabæ

Hjálparsveit skáta í Garðabæ/ og þjónustumiðstöð Garðabæjar hirða jólatré sem lögð verða út fyrir lóðamörk frá og með fimmtudeginum 6. janúar fram í næstu viku, íbúum að kostnaðarlausu.
  • Séð yfir Garðabæ

Hjálparsveit skáta í Garðabæ/ og þjónustumiðstöð Garðabæjar hirða jólatré sem lögð verða út fyrir lóðamörk frá og með fimmtudeginum 6. janúar fram í næstu viku, íbúum að kostnaðarlausu. Eftir þann tíma verða íbúar sjálfir að fara með tré sitt í Sorpu.

Íbúar eru beðnir að setja jólatré á áberandi stað við lóðarmörk og ganga þannig frá þeim að sem minnstar líkur séu á að þau fjúki.

Fjúkandi jólatré geta valdið skemmdum.