29. nóv. 2010

Ljósin tendruð á jólatrénu

Laugardaginn 27. nóvember sl. voru ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 41. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 27. nóvember sl. voru ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 41. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. 

Athöfnin fór fram í miðbæjargarðinum á Garðatorgi í fallegu vetrarveðri. Í upphafi dagskrár lék Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir gesti og að því loknu bauð Katrín Káradóttir formaður Norræna félagsins í Garðabæ alla velkomna.  Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Vernø Holter afhenti tréð fyrir hönd Asker og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitti trénu viðtöku. Skólabörn úr Sjálandsskóla sungu falleg jólalög þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu. Í lokin komu svo þeir Giljagaur og Stekkjarstaur í heimsókn og skemmtu viðstöddum með leik og söng. 

Skemmtileg stemmning á jólamarkaðnum

Fyrr um daginn var einnig mikið um að vera í miðbæ Garðabæjar.  Í Bókasafni Garðabæjar var sýnt barnaleikrit og ný listasýning opnaði í Listasal Garðabæjar. Félagsmenn í Grósku sýndu verk sín í gamla Hagkaupshúsinu og þar gátu gestir spjallað við listamennina og keypt sér listaverk. Einnig voru margir sem lögðu leið sína í göngugötuna á Garðatorgið til að skoða og kaupa ýmsan varning sem var til sölu á jólamarkaðnum.  Rekstraraðilar á Garðatorgi standa fyrir jólamarkaði á hverjum laugardegi fram til jóla.

 

Fleiri myndir frá dagskránni á Garðatorgi.