Fræddust um íbúalýðræði
Bæjarfulltrúar, nefndarmenn og starfsfólk úr stjórnsýslunni sat námskeið um íbúalýðræði sl. föstudag. Námskeiðið var liður í aðgerðaráætlun með lýðræðisstefnu Garðabæjar
Bæjarfulltrúar, fólk sem starfar í nefndum bæjarins og starfsfólk úr stjórnsýslunni sat námskeið um íbúalýðræði sl. föstudag. Námskeiðið var liður í framkvæmd aðgerðaráætlunar lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var dr. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Á námskeiðinu fjallaði hann um reynslu af hverfalýðræði bæði á Íslandi og í Svíþjóð og um íbúakosningar ásamt því að nefna nokkrar aðrar leiðir til að virkja íbúa sem hafa verið reyndar í nágrannalöndunum.
Lýðræðisstefna Garðabæjar var samþykkt í maí sl. Garðabær varð þá fyrst íslenskra sveitarfélaga til að marka sér stefnu um ibúalýðræði.
Stefnan er aðgengileg á vef Garðabæjar.