Heimsóttu bæjarstjórann
Börn af leikskólanum Hæðarbóli heimsóttu bæjarstjórann á skrifstofu hans í dag og lögðu fyrir hann spurningar um starfsemi bæjarins
Börn af leikskólanum Hæðarbóli heimsóttu Gunnar Einarsson bæjarstjóra á skrifstofu hans í dag og lögðu fyrir hann spurningar um starfsemi bæjarins.
Börnin komu gangandi af leikskólanum með kennurum sínum klædd í skínandi endurskinsvesti. Þau ræddu við bæjarstjórann um bæinn sinn og lögðu fyrir hann nokkrar spurningar, m.a. um hundahald sem bæjarstjórinn svaraði eftir bestu getu.
Börnin sungu fyrir bæjarstjórann áður en þau kvöddu og fengu brjóstnælur með Garðabæjarmerkinu að launum.