Ný sýning í Hönnunarsafninu
Ný sýning á verkum Sigríðar Heimisdóttur iðnhönnuðar opnaði í Hönnunarsafni Íslands laugardaginn 11. september sl. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hélt ræðu og opnaði sýninguna formlega. Fjöldi gesta lagði leið sína í safnið um helgina til að sjá fjölbreytt verk eftir Siggu Heimis. Sýningarstjóri er Árdís Olgeirsdóttir.
Í tengslum við sýninguna verður boðið upp á fjölbreytta fræðsludagskrá og mánudagskvöldið 13. september flytur Sigga Heimis fyrirlestur um hönnun sína í safninu að Garðatorgi. Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og allir eru velkomnir, aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis.
Hönnunarsafn Íslands er staðsett að Garðatorgi 1. Á heimasíðu safnsins, www.honnunarsafn.is. er hægt að sjá nánari upplýsingar um sýninguna og fræðsludagskrá vetrarins.
Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir opnaði sýninguna
Frá vinstri: Sigga Heimis iðnhönnuður, Árdís Olgeirsdóttir sýningarstjóri og Þorkell G. Guðmundsson iðnhönnuður.