9. sep. 2010

Sýning á verkum Siggu Heimis

Sýning á verkum Sigríðar Heimisdóttur iðnhönnuðar opnar í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ næstu helgi. Á sýningunni gefst tækifæri til að skoða fjölbreytta hönnun og kynnast starfi iðnhönnuðar sem vinnur í alþjóðlegu umhverfi.
  • Séð yfir Garðabæ

Sýning á verkum Sigríðar Heimisdóttur iðnhönnuðar opnar í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ næstu helgi.  Sýningin verður opin almenningi frá og með sunnudeginum 12. september. Á sýningunni gefst tækifæri til að skoða fjölbreytta hönnun og kynnast starfi iðnhönnuðar sem vinnur í alþjóðlegu umhverfi. Sýningarstjóri er Árdís Olgeirsdóttir. Hönnunarsafn Íslands er staðsett að Garðatorgi 1.

 

Sigga Heimis

Í hönnun sína hefur Sigga Heimis valið ólíkan efnivið og velt fyrir sér formi og notagildi með ábyrgri umhverfisvitund í huga. Sigga hefur sótt innblástur heim til Íslands í mörgum verkefnum sínum fyrir hluti sem hafa verið fjöldaframleiddir og finnast á heimilum og skrifstofum víða um heim. Hún starfaði lengi sem hönnuður hjá IKEA og kynntist þar vel hugmyndavinnu og aðferðarfræði fyrirtækisins.  Í upphafi árs 2008 var Sigga ráðin hönnunarstjóri hjá danska húsgagnaframleiðandanum Fritz Hansen og vann þar með fjölda hönnuða. Sigga hefur að auki starfað með fjölda erlendra háskóla víða um heim og unnið verkefni fyrir Vitra hönnunarsafnið í Þýskalandi og Corning glerlistasafnið í New York ásamt því að hanna í samstarfi við íslenska framleiðendur.


 

Fræðsla á safninu

Mánudaginn 13. september verður Sigga með fyrirlestur um hönnun sína. Hún mun segja frá starfi sínu sem iðnhönnuður og lýsa því umhverfi sem hún hefur starfað í. Fyrirlesturinn fer fram í Hönnunarsafni Íslands, Garðatorgi 1, 2. hæð og hefst kl. 20.


Nánari upplýsingar um Hönnunarsafn Íslands og fræðsludagskrá vetrarins er að finna á heimasíðu safnsins, www.honnunarsafn.is


Hilla eftir Siggu Heimis