Lokahátíð sumarlesturs
Mjög góð þátttaka var í SUMARLESTRI Bókasafns Garðabæjar. 167 börn skráðu sig í vor og 66 skiluðu inn lestrardagbók. Samtals lásu börnin 109263 blaðsíður sem er mjög góður árangur. Mörg börn voru afar dugleg að koma á bókasafnið í sumar til að fá límmiða í lestrardagbókina og hengja lauf og epli á lestrartré bókasafnsins enda hefur tréð blómgast vel.
Verðlaunaafhending fór fram á lokahátíðinni 19 .ágúst sl. og voru mestu lestrarhestarnir í ár Lovísa Rut Tjörvadóttir, 13 ára sem las 12 409 blaðsíður og Hugrún Gréta Arnarsdóttir 9 ára sem las 10 500 blaðsíður.
Aðrir sem lásu mest í hverjum árgangi og fengu bókaverðlaun voru:
6 ára – Sonja Lind Sigsteinsdóttir – 781 bls.
7 ára - Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir – 1783 bls.
7 ára – Hákon Orri Gíslason – 1685 bls.
8 ára - Aron Goði Jóhannsson – 2998 bls
8 ára – Zakaría Soualem – 1865 bls.
9 ára - Jóhanna María Bjarnadóttir – 6263 bls.
9 ára - Magnús Gunnar Gunnlaugsson – 3648 bls.
10 ára – Fjóla Ósk Guðmannsdóttir – 3216 bls
11 ára - Ipun Lahiru - 6471 bls.
12 ára - Ragnheiður Tryggvadóttir – 2788 bls.
Allir sem tóku þátt fengu viðurkenningarskjal og margir fengu glaðning þegar dregið var úr happdrættispottinum. Hópur frá Leikfélaginu Draumum sýndi söng-og dansatriði og starfsfólk bókasafnsins grillaði pylsur á lokahátíðinni.
Sjá einnig heimasíðu bókasafnsins.