Skapandi sumarhópur
Tónleikar og sýning á Garðatorgi
Skapandi sumarhópur bauð upp á lokahóf sitt fimmtudaginn 22. júlí á Garðatorgi. Skapandi sumarhópur er vinnuhópur á vegum bæjarins þar sem ungmönnum er gert kleift að nýta sér listræna hæfileika sýna með vinnu í sumar.
Hópurinn stóð fyrir sýningu af starfi sumarsins fyrir framan Blómabúð Garðabæjar og hélt að auki tónleika á torginu.
Þar mátti sjá ýmis glæsileg listaverk og ljóst er að sköpunargáfu vantar ekki meðal yngri kynslóðarinnar.
Fyrir frekari upplýsingar um starfið er hægt að sjá á vefsíðu hópsins, www.skapandigardabaer.bloggar.is