Góð skemmtun á 17. júní
Fjölbreytt dagskrá var í boði víðs vegar um Garðabæ á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. Um morguninn var boðið upp á kanósiglingar við Urriðavatn og í Vífilsstaðavatni var ókeypis veiði. Golfklúbbur Álftaness hélt sitt árlega 17. júní mót um morguninn og frá 10-14 var opið í Álftaneslaug þar sem var ókeypis aðgangur í tilefni dagsins. Í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg var einnig opið og ókeypis aðgangur í tilefni dagsins.
Hátíðardagskrá á Álftanesi
Hátíðardagskráin á Álftanesi hófst að morgni kl. 10 með helgistund í safnaðarheimilinu að Brekkuskógum þaðan sem gengið var í skrúðgöngu að hátíðarsvæði við Álftaneslaug. Á hátíðarsviði var boðið upp á skemmtidagskrá þar sem fram komu m.a. Agla Bríet, Rebekka Blöndal og einnig mættu íþróttaálfurinn og Solla stirða á svæðið. Síðar um daginn var hátíðarkaffihlaðborð Kvenfélags Álftaness í hátíðarsalnum á Álftanesi.
Hátíðardagskrá við Garðaskóla
Um daginn eða kl. 13.15 var að venju hátíðarstund í Vídalínskirkju og þaðan var haldið í skrúðgöngu að hátíðarsvæði við Garðaskóla og íþróttamiðstöðina Ásgarð. Þar flutti Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, ávarp og boðið var upp á fjölbreytta skemmtidagskrá þar sem fram komu m.a. Dikta, Agla Bríet, atriði frá Latabæ og inni í Ásgarði var fimleikasýning. Leiktækin voru að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn gátu skemmt sér í hoppuköstulum og fengið andlitsmálun. Kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar var vinsælt eins og fyrri ár og haldið síðdegis í Garðaskóla.
Dagskráin var í umsjón skátafélagsins Vífils.
Fagrir tónar um kvöldið
Um kvöldið voru hátíðartónleikar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Þar steig á svið hljómsveitin Salon Islandus og gestur þeirra þetta kvöld var sópransöngkonan Fjóla Kristín Nikulásdóttir. Á efnisskránni var hugljúf vínartónlist og atriði úr óperum og söngleikjum.
Á fésbókarsíðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá deginum.