Velkomin í Hönnunarsafnið
Hönnunarsafn Íslands var opnað formlega í gær fimmtudaginn 27. maí að Garðatorgi 1. Um leið var opnuð fyrsta sýning þess í nýju húsnæði sem kallast "Úr hafi til hönnunar".
Meðal gesta við opnunina voru forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og fyrrverandi forseti landsins frú Vigdís Finnbogadóttir. Forsetarnir lýstu ánægju bæði með sýninguna og húsnæðið sjálft en Kanon arkitektar eiga veg og vanda að endurbótum þess.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnaði sýninguna og fjallaði þá m.a. um mikilvægi hönnunar og hve stór þáttur hönnun væri orðinn í lífi nútímafólks. Hún sagðist ánægð með að safnið væri komið í þetta glæsilega húsnæði sem hæfði vel starfsemi þess. Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Hönnunarsafns Íslands ávarpaði einnig gesti opnunarinnar. Hann fór yfir verkefni safnsins og gaf innlit í framtíðarsýn þess ásamt því að tala um stefnu safnsins varðandi safneign og hlutverk þess í að miðla hönnunarsögunni.
Hönnunarsafn Íslands hefur slitið barnsskónum, er orðið safn meðal safna á höfuðborgarsvæðinu og mun standa fyrir reglulegu sýningarhaldi héðan í frá.
Safnið verður opið alla daga nema mánudaga frá 12-17. Í boði verður alltaf nýmalað kaffi og notaleg stemmning.
Upplýsingar um sýningar safnsins er að finna á vefsíðunni www.honnunarsafn.is
Auglýsing um sýninguna Úr hafi til hönnunar.
Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Hönnunarsafnsins fræddi gesti opnunarinnar um verkefni safnsins og framtíðarsýn þess.
Fjölmenni var við opnunina.
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
Frú Vigdís Finnbogadóttir var meðal gesta við opnunina.
Gestir skoðuðu sýninguna Úr hafi til hönnunar en á henni eru fjölbreyttir gripir úr roði eftir íslenska og erlenda hönnuði.
Húsið að Garðatorgi 1 eftir vel heppnaðar endurbætur.