Fjölbreytt dagskrá á 17. júní í Garðabæ
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá er í boði á 17. júní hátíðarhöldunum í Garðabæ nk. föstudag.
Tímasett dagskrá er hér í viðburðadagatalinu.
Morgundagskráin fer fram víðs vegar um Garðabæ og hefst kl. 09 við Urriðavatn þar sem boðið verður upp á kanósiglingar og í Vífilsstaðavatni verður ókeypis veiði allan daginn. Á Álftanesi verður hið árlega 17. júnímót Golfklúbbs Álftaness sem hefst kl. 10. Sundlaugin á Álftanesi verður með ókeypis aðgang frá kl. 10-14 og gestir fá einnig ókeypis aðgang þennan dag í Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi sem er opið frá kl. 12-17.
Hátíðardagskrá á Álftanesi – Agla Bríet, Rebekka Blöndal, hoppukastalar, kaffihlaðborð, o.fl.
Hátíðardagskráin á Álftanesi hefst með helgistund í safnaðarheimilinu að Brekkuskógum kl. 10 og kl. 10:15 verður gengið í skrúðgöngu að hátíðarsvæði við Álftaneslaug. Þar verður hátíðarsvið þar sem fram koma m.a. Agla Bríet úr Ísland got talent, Rebekka Blöndal úr The Voice og einnig verður atriði úr Latabæ. Á svæðinu verða einnig hoppukastalar og skátafélagið Svanir verða með sjoppu. Síðar um daginn verður hið margrómaða kaffihlaðborð Kvenfélags Álftaness frá kl. 14.30-16 í hátíðarsal Álftaness.
Hátíðardagskrá við Garðaskóla – hljómsveitin Dikta, Latibær, leynigestur, fimleikasýning, leiktæki, kaffihlaðborð o.fl.
Kl. 13:15 verður hátíðarstund í Vídalínskirkju þar sem nýstúdent flytur ávarp. Skrúðganga leggur af stað kl. 14 frá Vídalínskirkju að hátíðarsvæði við Garðaskóla. Dagskráin á hátíðarsviði við Ásgarð hefst kl. 14.40 með ávarpi bæjarstjórnar, meðal þeirra sem koma fram eru Dikta, Agla Bríet, Solla stirða og íþróttaálfurinn, og leynigestur. Inni í Ásgarði verður boðið upp á fimleikasýningu frá fimleikadeild Stjörnunnar. Á hátíðarsvæðinu verða hoppukastalar og ýmis leiktæki, andlitsmálun og sölutjöld. Hið árlega kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar verður haldið í Garðaskóla kl. 14.30-17.
Dagskráin að morgni og degi til er í umsjón Skátafélagsins Vífils.
Hátíðartónleikar að kvöldi í Kirkjuhvoli – Salon Islandus og Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Um kvöldið verða haldnir hátíðartónleikar í safnaðarheimili Vídalínskirkju, Kirkjuhvoli, kl. 20.00. Þar stígur hljómsveitin Salon Islandus á svið ásamt Fjólu Kristínu Nikulásdóttur sópransöngkonu. Á efnisskránni er hressileg vínartónlist, marsar, valsar og polkar en einnig lög úr smiðju Leonards Bernstein. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis í boði Garðabæjar og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.