30. apr. 2010

Listalíf í skólum bæjarins

Listalífið blómstrar í skólum bæjarins þessa vikuna á meðan Listadagar barna og ungmenna standa sem hæst. Í Garðaskóla voru haldnir þemadagar í byrjun vikunnar þar sem nemendur fengu að taka þátt í mörgum listasmiðjum og afraksturinn var svo sýndur á opnu húsi miðvikudaginn 28. apríl sl.
  • Séð yfir Garðabæ

Listalífið blómstrar í skólum bæjarins þessa vikuna á meðan Listadagar barna og ungmenna standa sem hæst.  Í Garðaskóla voru haldnir þemadagar í byrjun vikunnar þar sem nemendur fengu að taka þátt í mörgum listasmiðjum og afraksturinn var svo sýndur á opnu húsi miðvikudaginn 28. apríl sl.  Fleiri skólar hafa verið með opin hús og boðið þar upp á leiksýningar, stuttmyndasýningar, listgjörninga o.fl.  Á heimasíðum skólanna má sjá margar flottar myndir af upprennandi ungum listamönnum.

Hér á heimasíðu Garðabæjar má sjá nánari upplýsingar um listadagana og dagskrána framundan.

 


Þessir nemendur úr Garðaskóla tóku þátt í að skreyta einn vegg skólans.


Sýning Garðaskóla í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar Ásgarðs.


Fjör á opnu húsi í Garðaskóla


Nemendur í Garðaskóla bjuggu til þennan bangsa


Þessar hressu stúlkur í Flataskóla voru með leiðsögn fyrir gesti um sýningu skólans.


Brúðuleikhús í Flataskóla


Hressar stúlkur í Sjálandsskóla


Kassabílarallý í Sjálandsskóla


Klifurveggur í Sjálandsskóla