21. apr. 2010

Áætlanir virkjaðar

Garðabær hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þótt að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands.
  • Séð yfir Garðabæ

Garðabær hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Er það gert til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Eyjafjallajökli. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu fyrir öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Almannavarnir hafa gefið út fræðsluefni til íbúa um viðbrögð við öskufalli. Nálgast má skjalið á sérstakri síðu sem Garðabær bær hefur sett upp vegna viðbragða um hugsanlegt öskufall. Slóðin er www.gardabaer.is/Stjornsysla/oskufall

Fylgst með loftgæðum


Viðbragðsteymi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar fylgist með loftgæðum í borginni allan sólarhringinn í gegnum þrjár mælistöðvar og sendir upplýsingar á tengiliði í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Að mati Heilbrigðiseftirlitsins er ekki ástæða til sérstakra varúðarráðstafana vegna hugsanlegs öskufalls á höfuðborgarsvæðinu á þessari stundu. Einnig er fylgst vel með vatnsbólum.


Tryggt verður að allar starfseiningar Garðabæjar fái ítarlegar upplýsingar í tengslum við hugsanlegt öskufall í sveitarfélaginu. Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum sveitarfélagsins. Upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna hugsanlegs öskufalls er að finna á vef Garðabæjar og er þá miðað við leiðbeiningar sem áður voru gerðar um röskun á skólastarfi vegna óveðurs.

 

Viðbrögð við öskufalli