29. mar. 2010

Ljóðahátíð Flataskóla

Ljóðahátíð Flataskóla var haldin í sjötta sinn miðvikudaginn 24. mars. Nemendur lásu upp verðlaunaljóð sín í hátíðarsal skólans.
  • Séð yfir Garðabæ

Ljóðahátíð Flataskóla var haldin í sjötta sinn miðvikudaginn 24. mars. Nemendur lásu upp verðlaunaljóð sín í hátíðarsal skólans.

Dagana fyrir hátíðina sömdu nemendur ljóð undir ýmsum bragarháttum. Ragnar Ingi Aðalsteinsson, aðjúnkt á íslenskukjörsviði kennaradeildar Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, kom í heimsókn til að kynna nemendum ljóðagerð og lagði sérstaka áherslu á ferskeytlur.

Herdís Egilsdóttir kennari var gestur hátíðarinnar að þessu sinni. Herdís ávarpaði nemendur og lagði áherslu á mikilvægi ljóðsins. Verðlaunahöfundar lásu upp ljóðin sín og fengu viðurkenningar fyrir þau að því loknu.

Ljóðið hennar Önnu Bjarnsteinsdóttur í 7.H.S.G. var valið ljóð Flataskóla 2010.

Sjá myndir frá hátíðinni á vef Flataskóla.