19. mar. 2010

Samið við Garðverktaka

Samið verður við fyrirtækið Garðverktaka ehf. um framkvæmdir við Stjörnutorg.
  • Séð yfir Garðabæ

Samið verður við fyrirtækið Garðverktaka ehf. um framkvæmdir við Stjörnutorg. Verkið sem fellst í yfirborðsfrágangi torgs og bifreiðastæða auk tengdra verkefna var boðið út nýlega og bárust alls 18 tilboð.

Bæjarráð samþykkti í gær tillögu bæjarverkfræðings um að semja við Garðverktaka en tilboð þeirra var metið hagstæðast eftir yfirferð tilboða.

Fundargerð bæjarráðs.