1. mar. 2010

Skíðagöngubraut á GKG

Skíðagöngubraut hefur verið troðin á Vífilsstaðavelli, golfvelli GKG og er hún opin bæði félögum í GKG og öðru skíðafólki
  • Séð yfir Garðabæ

Skíðagöngubraut hefur verið troðin á Vífilsstaðavelli, golfvelli GKG og er hún opin bæði félögum í GKG og öðru skíðafólki.

Brautin hefst við áhaldahúsið og liggur um dalinn. Best er að leggja bílum við áhaldahúsið og hefja göngu þaðan. 

Vallarstjóri hjá GKG biður þá sem ganga á skíðum að fylgja brautinni og ganga ekki annars staðar s.s yfir flatir og teiga.