Efla hreysti skólabarna
Undanfarna daga hafa fimm kennarar og skólastjórnendur frá Englandi, Frakklandi og Þýskalandi heimsótt Sjálandsskóla í tengslum við umsókn þessara aðila að Comeniusarverkefni. Að umsókninni standa einnig skólar á Spáni, Portúgal og Ítalíu.
Comeniusarverkefni miða að því að koma á gæðastarfi í skólum og tryggja Evrópuvitund í menntun. Styrkt eru fjölþjóðleg samstarfsverkefni við skóla víðs vegar í Evrópu. Einnig er lögð áhersla á að auka möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar kennara og efla tungumálanám á öllum skólastigum.
Verkefnið sem Sjálandsskóli tekur þátt í kallast “Fit for life” en markmiðið með því er að efla hreysti skólabarna og hvetja þau til að temja sér heilbrigðan lífsstíl. Gunnar Einarsson bæjarstjóri hitti hina erlendu gesti í Sjálandsskóla fyrir helgina og kynnti skólastefnu Garðabæjar. Á myndinni má sjá Gunnar ásamt fulltrúum Sjálandsskóla í verkefninu og gestum.