Bæjarstjórar hjóluðu saman
Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í ,,Hjóladegi fjölskyldunnar" laugardaginn 19. september sl. Hjólalest frá Hafnarfirði lagði af stað rétt fyrir hádegi með viðkomu í Garðabæ þar sem Gunnar Einarsson bæjarstjóri o.fl. bættust í hópinn. Hjólamenn héldu áleiðis í Kópavoginn þar sem var vatnsdrykkjarstopp og svo var haldið áfram til Reykjavíkur. Samtímis lögðu hjólamenn af stað frá Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Hjólreiðamenn sameinuðust í Nauthólsvík í Reykjavík og hjóluðu saman síðasta sprettinn að Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem hinn árlegi Tjarnarsprettur götuhjólanna fór fram samdægurs. Hjóladagur fjölskyldunnar var hluti af dagskrá Evrópskrar samgönguviku sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í ásamt fjölmörgum öðrum sveitarfélögum. Sjá frétt um dagskrá samgönguvikunnar.
Ljósmynd af vef Reykjavíkurborgar, bæjarstjórar og borgarstjóri, frá vinstri:
Haraldur Sverrisson Mosfellsbæ, Lúðvík Geirsson Hafnarfirði, Gunnar Einarsson Garðabæ, Gunnsteinn Sigurðsson Kópavogi, Hanna Birna Kristjánsdóttir Reykjavík, Ásgerður Halldórsdóttir Seltjarnarnesi og fremst Theódóra Guðný dóttir Hönnu Birnu.