28. ágú. 2009

Virðum hámarkshraða

Ef keyrt er hraðar en 30 km/klst margfaldast líkur á alvarlegum áverka ef keyrt er á gangandi vegfaranda
  • Séð yfir Garðabæ

Nú þegar skólastarf er hafið með tilheyrandi gangandi umferð ungra vegfarenda er ástæða til að minna ökumenn á að hámarkshraði í íbúðahverfum í Garðabæ er 30 km á klst.

Líkur á alvarlegu slysi margfaldast

Í grein bæjarstjóra sem birtist í Garðapóstinum sem kemur út í dag, 28. ágúst, kemur fram að það er ekki að ástæðulausu að hámarkshraði í íbúðahverfum er 30 km / klst. Reynslan sýnir að hraðari akstur en 30 km á klst. eykur margfalt hættuna á að áverkar gangandi vegfaranda verði miklir og leiði jafnvel til dauða.

Hugarfar og vilji ökumanna skiptir mestu

Í íbúðahverfum eru börn gjarnan að leik og geta þau komið óvænt út á götu, á milli kyrrstæðra bíla. Við slíku er erfitt að bregðast nema ekið sé af mikilli varfærni.

 

Hugarfar og vilji ökumanna er það sem skiptir mestu máli til að árangur náist í að tryggja öryggi barnannna okkar og annarra vegfarenda í umferðinni.

 

Bæjarstjóri og umferðarnefnd Garðabæjar hvetja ökumenn til að virða hámarkshraða þegar ekið er um bæinn og leggja þannig sitt af mörkum til að auka öryggi barna og annarra gangandi vegfarenda.