28. des. 2016

Taktu þátt í vali á íþróttamönnum Garðabæjar 2016

Fimm karlar og fimm konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2016.
  • Séð yfir Garðabæ

Fimm karlar og fimm konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2016. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2016.

Vefkosning fer fram á vef Garðabæjar og stendur til og með 3. janúar.

Upplýsingar um íþróttamennina sem eru tilnefndir og afrek þeirra
.

Vefkosning - íþróttamenn Garðabæjar 2016

Tilkynnt verður um kjör íþróttamanna Garðabæjar í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 8. janúar 2017 kl. 13. Þar verða einnig veittar fleiri viðurkenningar vegna íþrótta- og æskuýðsstarfs.

Allir eru velkomnir á hátíðina.

Myndin er af íþróttamönnum Garðabæjar 2015.