Atvinnulausir fá frí sundkort
Garðbæingar sem eru án atvinnu og njóta að a.m.k. 50% bótaréttar úr atvinnuleysistryggingasjóði eiga rétt á fríu aðgangskort í sundlaug og líkamsrækt í Ásgarði skv. samþykkt bæjarráðs.
Garðbæingar sem eru án atvinnu og njóta að a.m.k. 50% bótaréttar úr atvinnuleysistryggingasjóði eiga rétt á fríu aðgangskorti í sundlaug og líkamsrækt í Ásgarði skv. samþykkt bæjarráðs.
Kortin eru afhent í þjónustuveri Garðabæjar á Garðatorgi gegn framvísun persónuskilríkja og nýjasta greiðsluseðils atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Kortin gilda í sex mánuði í senn.