2. mar. 2009

Bikarinn áfram í Garðabæ

Stjarnan er bikarmeistari í handknattleik kvenna eftir sigur á FH í úrslitaleik á laugardag
  • Séð yfir Garðabæ

Stjarnan er bikarmeistari í handknattleik kvenna eftir sigur á FH í úrslitaleik laugardaginn 28. febrúar. Lokastaðan í leiknum var 27-22.

Með sigrinum varði Stjarnan bikarmeistaratitil sinn og tryggði því félagi sínu bikarinn annað árið í röð.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar sendir liðinu hamingjuóskir með árangurinn.

Myndir: Garðapósturinn.

Stjarnan - bikarmeistari í handknattleik kvenna 2009

Áhorfendur fagna bikarmeisturum Stjörnunnar