13. feb. 2009

Karfan býður til hátíðar

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar býður til fjölskylduhátíðar í Ásgarði sunnudaginn 15. febrúar kl. 13-15
  • Séð yfir Garðabæ

Bikarúrslit og fjölskylduhátíð

Stjarnan leikur á móti KR í úrslitaleik Subway-bikarsins í körfu í Laugardalshöllinni sunnudaginn 15. febrúar kl. 16.

Í tilefni dagsins býður körfuknattleiksdeildin öllum Garðbæingum til fjölskylduhátiðar sem hefst kl. 13:00 í Ásgarði.

  • Pylsur og gos fyrir alla.
  • Hoppukastalar fyrir krakkana
  • Andlitsmálun
  • Krakkar úr Garðaskóla sýna atriði úr Mamma Mía
  • Sigurjón Brink kemur og tekur Stjörnulagið.

Sætaferðir í Höllina frá Ásgarði kl. 15:00.

Leikurinn hefst kl. 16:00