6. feb. 2009

Álagningarseðlar á netinu

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2009 birtir á Mínum Garðabæ
  • Séð yfir Garðabæ

Greiðendur fasteignagjalda í Garðabæ geta nú nálgast álagningarseðla fasteignagjalda 2009 með því að skrá sig inn á Minn Garðabæ.

Neðst á forsíðu Míns Garðabæjar hefur nú bæst við rönd sem í stendur Fasteignagjöld. Með því að smella á PDF tákniðí línunni þar fyrir neðan fæst álagningarseðillinn í PDF-formi.

Einnig er hægt að skoða það sem er til greiðslu á hverjum tíma, þ.e. fasteignagjöld, leikskólagjöld og gjöld fyrir tómstundaheimili grunnskóla, með því að smella á greiðslustaða. Þar sjást einnig þær greiðslur sem hafa verið reiddar af hendi tli bæjarins á undanförnum árum.