Frábær stemning á Garðatorginu
Fjöldi Garðbæinga mætti á tónleika á Garðatorgið fimmtudagskvöldið 20. nóvember sl. Tónleikarnir voru í boði menningar- og safnanefndar Garðabæjar undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu.
Tónlistarmennirnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson voru mættir til leiks og skemmtu áhorfendum langt fram eftir kvöldi. Áhorfendur sem voru á öllum aldri tóku vel undir og fengu nokkur vel valin uppklappslög að lokum, m.a. fluttu þeir hið alþekkta Eurovision-lag um Nínu.
Næstu tónleikar á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar eru klassískir tónleikar laugardaginn 29. nóvember kl. 17 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari stíga þar á svið. Sjá nánari umfjöllun um Kammermúsík í Garðabæ í dagbókinni hér á heimasíðunni.