14. nóv. 2008

Nágrannavarsla í Ásum

Nágrannavarsla verður kynnt íbúum í hluta af Ásahverfi á fundi í Flataskóla miðvikudaginn 19. nóvember nk.
  • Séð yfir Garðabæ

Íbúar í hluta af Ásahverfi eru boðaðir á kynningarfund um nágrannavörslu nk. miðvikudag, 19. nóvember kl. 20. Fulltrúar lögreglunnar hafa í vikunni gengið í hús í þeim götum sem nágrannavarslan verður innleidd í og afhent ibúum fundarboð og könnun sem þeir eru beðnir um að svara.

Byrjaði í Lundahverfi í haust

Nágrannavarslan er samstarfsverkefni Garðabæjar og svæðisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu i Garðabæ. Verkefnið var kynnt fyrir íbúum í efri Lundum í haust og hafa íbúar þar verið virkir í að innleiða það. Stefnt er að því að kynna það í sem flestum hverfum bæjarins í vetur.

Nágrannavarslan felst í því að íbúar taka höndum saman um að vernda heimili sín og nánasta umhverfi fyrir óboðnum gestum. Það er gert annars vegar með því að huga að forvörnum á eigin heimili og hins vegar með því að fallast á að líta eftir heimili nágranna sinna þegar þeir eru fjarverandi.

Skilti sett upp í hverfinu

Þar sem nágrannar hafa sammælst um að taka upp virka nágrannavörslu fær fólk límmiða til að setja í rúður húsa sinna, til marks um að þar sé stunduð nágrannavarsla. Einnig verða skilti  sett upp í hverfinu.

Atvinnu- og tækniþróunarnefnd sá um undirbúning verkefnisins í samstarfi við lögregluna.

Upplýsingar um nágrannavörslu veitir Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri í síma 525 8523.