15. okt. 2008

Nýir vefir leikskólanna

Allir leikskólar Garðabæjar, fimm talsins, tóku nýja vefi í notkun í dag. Opnun nýju leikskólavefjanna er framhald á endurnýjun allra vefja Garðabæjar
  • Séð yfir Garðabæ

Allir leikskólar Garðabæjar, fimm talsins, tóku nýja vefi í notkun í dag. Opnun nýju leikskólavefjanna er framhald á endurnýjun allra vefja Garðabæjar en í vor var opnaður nýr vefur sveitarfélagsins, www.gardabaer.is og nýir vefir fyrir alla grunnskóla bæjarins.

Auðvelda foreldrum upplýsingaleit

Allir vefirnir hafa að hluta til samræmt útlit og viðmót þeirra allra og uppbygging er sambærileg. Tilgangur þess er fyrst og fremst að auðvelda foreldrum og öðrum Garðbæingum að finna þær upplýsingar sem leitað er að. Foreldrum, sem eiga börn á fleiri en einu skólastigi, t.d. eitt barn í leikskóla, eitt barn í Hofsstaða/Flata/Sjálandsskóla og eitt barn í Garðaskóla, mætir sambærilegt viðmót og veftré á vefjum allra þessara skóla, þótt hver þeirra fái eftir sem áður að halda sínum sérkennum.

Brugðist við ábendingum

Í leikskólum Garðabæjar er unnið metnaðarfullt starf sem foreldrar hafa lýst mikilli ánægju með, m.a. í nýrri könnun sem Capacent vann fyrir Garðabæ. Það sem hefur helst komið í ljós að mætti bæta í starfi þeirra er upplýsingamiðlun til foreldra. Með nýjum vefjum er stigið stórt skref í þá átt að koma til móts við þessar ábendingar og óskir foreldra.

Teymi vefumsjónarmanna

Allir vefirnir eru unnir í sama vefumsjónarkerfinu, Lisu, sem gerir bænum kleift að byggja upp teymi vefumsjónarmanna hjá Garðabæ sem geta miðlað þekkingu sín á milli, leitað til hvers annars og jafnvel leyst hver annan af. Slík samvinnu eykur mjög hagræði við rekstur vefsvæðanna auk þess sem nýja kerfið býður upp á marga möguleika til áframhaldandi framþróunar.

Þess má geta að Hönnunarsafn Íslands sem rekið er af Garðabæ hefur einnig opnað vef sem byggir á sömu hönnun og vefir skólanna, á slóðinni www.honnunarsafn.is.

Vefir leikskólanna eru á slóðunum:

Á myndinni eru elstu börnin á Bæjarbóli en þau sungu þrjú lög fyrir viðstadda við opnun vefjanna.

Leikskólastjórarnir opna nýju vefina

Leikskólastjórarnir opna nýja vefina. Frá vinstri:  Helga Kristjánsdóttir á Sunnuhvoli, Katrín Sæland Einarsdóttir á Lundabóli, Marta Sigurðardóttir á Kirkjubóli, Ingibjörg Gunnarsdóttir á Hæðarbóli og Kristín Sigurbergsdóttir á Bæjarbóli. Gunnar Einarsson bæjarstjóri fylgist með.