1. sep. 2008

Námsmannakort komin

Fyrstu námsmannakortin í strætó eru tilbúin til afhendingar í þjónustuverinu í Ráðhúsinu á Garðatorgi.
  • Séð yfir Garðabæ

Fyrstu námsmannakortin í strætó eru tilbúin til afhendingar í þjónustuverinu í Ráðhúsinu Garðatorgi. Þeir sem voru fyrstir til að sækja um kort geta sótt þau nú þegar.

Almennt á það við að kortin verða tilbúin í þjónustuverinu í síðasta lagi á föstudegi í vikunni eftir að þau eru pöntuð.

Þegar kort er sótt er nauðsynlegt að framvísa persónuskilríkjum. Námsmannakortin kosta 3.100 krónur.

Sótt er um kortin á vefnum www.straeto.is.

Á myndinni afhendir Gunnar Einarsson bæjarstjóri Hlyni Torfa Traustasyni námsmannakort í strætó, en Hlynur var einn af þeim fyrstu til að sækja um kort.