Viltu taka þátt í Útsvari?
Senn fer í loftið spurningaþáttur Sjónvarpsins Útsvar.
Ertu fróð/ur, býrð í Garðabæ og hefur gaman af spurningakeppnum eða veistu um einhvern Garðbæing sem þessi lýsing á við? Ef svo er, láttu okkur vita. Garðabær leitar að fólki til að taka þátt í Útsvari spurningaþætti Sjónvarpsins.
Útsvar er spurningaþáttur sveitafélaganna sem var á dagskrá Sjónvarpsins síðasta vetur. Lið Garðabæjar stóð sig með stakri prýði og komst í undanúrslit.
Allar ábendingar um frambærilega væntanlega þátttakendur skal senda á ingunnbi@gardabaer.is