13. ágú. 2008

Framkvæmdir í ráðhúsinu

Framkvæmdir halda áfram í ráðhúsinu við Garðatorg. Gera má ráð fyrir skertri þjónustu mánudaginn 18. ágúst. Þjónustuverið á jarðhæð verður opið en engin starfsemi á þriðju hæðinni.
  • Séð yfir Garðabæ

Framkvæmdir halda áfram í ráðhúsinu við Garðatorg. Gera má ráð fyrir skertri þjónustu mánudaginn 18. ágúst. Þjónustuverið á jarðhæð verður opið en engin starfsemi á þriðju hæðinni.

Eftir að þjónustuverið tók til starfa á jarðhæð ráðhússins hafa framkvæmdirnar færst upp á þriðju hæð, þar sem bæjarskrifstofurnar eru til húsa. Þar er nú unnið að umtalsverðum breytingum á skrifstofurýminu m.a. með því að taka niður gamla afgreiðsluborðið og koma upp fleiri vinnustöðvum.

Um næstu helgi og fram á mánudag verða brotnir niður þeir veggir sem eiga að víkja í breytingunum. Vegna þess verður þriðja hæðin lokuð á mánudeginum og öll starfsemi þar mun liggja niðri. Þjónustuverið á jarðhæð verður opið en þar fer fram öll almenn afgreiðsla og símsvörun við viðskiptavini.