Yfirlýsing frá bæjarstjóra
Fjármálastjóri lætur af störfum
Við reglubundið innra eftirlit á bæjarskrifstofum Garðabæjar kom í ljós að fjármálastjóri bæjarins hefur ráðstafað með óheimiluðum hætti í persónulega þágu 9,2 milljónum króna á nokkurra mánaða tímabili.
Fjármálastjóri hefur gengist við því að um óheimila ráðstöfun er að ræða og þegar látið af störfum. Hefur hann þegar undirritað greiðslutryggingu til Garðabæjar vegna máls þessa.
Málið verður tilkynnt til réttra yfirvalda.