17. júní í Garðabæ
Fjölmargir tóku þátt í hátíðarhöldum á þjóðhátíðardaginn í Garðabæ
Fjölmenni var við hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Garðabæ.
Að venju var það Skátafélagið Vífill sem hafði umsjón með hátíðarhöldunum. Skátar leiddu skrúðgöngu frá Vídalínskirkju að hátíðarsvæðinu við Garðaskóla en með henni lék einnig Blásarasveit Tónlistarskólans í Garðabæ.
Á hátíðarsvæðinu tóku við ávörp fjallkonunnar og forseta bæjarstjórnar en að þeim loknum skemmtu ungir og aldnir sér fram eftir degi. Kökuhlaðborð Kvenfélagsins var í Flataskóla í ár og var enginn svikinn af því fremur en áður.