Samgönguráðherra í Garðabæ
Þá skoðaði hópurinn væntanleg brúarmannvirki á mótum Reykjanesbrautar og Vífilsstaðavegar. Að lokum var ráðherranum boðið í kaffi á bæjarskrifstofunum þar sem málin voru rædd.
Fundurinn var haldinn að frumkvæði Stefáns Konráðssonar, bæjarfulltrúa og formanns skipulagsnefndar Garðabæjar sem ritaði nýverið grein í Morgunblaðið þar sem hann vakti athygli á stöðu samgöngumála í Garðabæ og á höfuðborgarsvæðinu. Í greininni hvatti Stefán ráðherra til að koma í heimsókn og fara yfir málin. Ráðherrann brást skjótt við þessari hvatningu og mætti til Garðabæjar í morgun. Á fundinum auk Stefáns voru formaður bæjarráðs, Erling Ásgeirsson, Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari og Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur.
Á myndinni eru frá vinstri: Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur,
Stefán Konráðsson, formaður skipulagsnefndar, Kristján Möller
samgönguráðherra, Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs og
Guðjón E. Friðriksson bæjarritari.